...
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
30.04.2007 00:15:45 / gurka

yoo.

Vúhúúú.  Það er kominn 30. apríl sem að er merkur dagur í mínu lífi .. Ég á afmæli í dag:]

Annars ætlaði ég ekki að blogga útaf því. Langaði bara að láta fólk vita að blog.central síðan mín er eitthvað ekki alveg að standa sig og vill ekki leyfa mér að vista nýja síðu þar sem að ég var að setja inn myndirnar af lokaballinu :] fyrir áhugasama er hægt að nálgast þær á eftirfarandi veslóð : http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=16275948&uid=5623619  ... þetta var fínt ball! Skemmtileg sú staðreynd að fyrsta árinu mínu í menntaskóla er senn að ljúka.  Allavega ætla ég að fara að gera eitthvað af viti.

Takk fyrir mig.
Jónína Rut


» 14 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 11:14:33 / gurka

jÓvan rey á afmæli

 

 

Jájájá, í daaaag er 24.apríl sem gerir það að verkum að góðvinur minn og eiginkona, hann Jovan Rey hefur elst um eitt ár.  Í dag er hann orðinn 18 ára og þykir mér það merkur áfangi og meira en tilefni í stutt blogg. So...

Til hamingju með afmælið elsku Jovan minn <3

 

Jájá verið góð vil allt og alla:] Hendi inn betra bloggi þegar tími gefst.
takk fyrir
-Jónína Rut


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 14:37:18 / gurka

glamúr

now playing ; relax, take it easy - mika

 

góðan daginn.
erum við ekki að grínast með það að ég sé í fjórðu eyðunni minni í dag?* Öss. Þetta er alveg með ólíkindum, ég fór í tvo tíma í morgun, semsagt til klukkan 10 og hef verið í eyðu síðan þá. Og klukkan er að nálgast þrjú!  Svo hefði ég getað farið heim fyrir klukkutíma nema hvað að ég þarf að bíða eftir ökukennaranum mínum til klukkan 3.  Váá hvað þetta var fullkomin byrjun á tilgangslausu bloggi sem stafar af algjöru eirðaleysi. Ég veit ekkert hvernig ég á að haga mér . gæti samt sem áður auðveldlega sofnað herna á lyklaborðinu mínu en hef kosið að gera það helst ekki, og reyna þess vegna að hafa eitthvað fyrir stafni þangað til klukkan þrjú.  Ég er reyndar búin að vera geðveikt dugleg líka í dag, ég er búin að læra helling fyrir bílprófið mitt. Styttist í það að ég taki bóklega.. Þetta er allt að gerast:] tíminn bara gjörsamlega flýgur áfram.

Páskarnir mínir voru þessi líka afbragðs skemmtun.  Fullt af fólki kom í heimsókn vestur og ég hafði bara varla tíma til að sinna þeim öllum. Stundum vildi ég að hægt væri að vera á tveimur stöðum á sama tíma.   Ég var líka að vinna, bæði í sjoppunni og sundlauginni.  Þannig er nefnilega mál með vexti að ég er í einhvers konar "þjálfun" í sundlauginni því að ég gæti orðið heppin og fengið smá vinnu þar í sumar samhliða sjoppuvinnunni minni. Þetta verður því fyrsta sumarið mitt síðan að ég var á 14.ári sem að mín leið liggur ekki beint í frystihúsið í sumar og það kætir mig. En já, áfram með páskana.  Margrét og Jói komu hingað, sáu og sigruðu. Já, þau nýttu bæði páskafríið í að taka bílprófið og náðu því bæði, til hamingju með það ;*  Ótrúlega fyndið og gaman að fara á rúntinn með Margréti Öldu.  Hrefna Hrund kom líka í heimsókn um páskana og það var yndislegt að hafa hana í öllu fríinu, sem og Guðrún Lilja. Svo kíkti líka Hannibal rétt yfir blá páskana en kappinn sá er sko upptekinn með meiru. Honum gengur líka svona prýðisvel í sundinu.  En já, þetta voru svona líka bara þeir fínustu páskar. Aldrei fór ég suður var fínt þó svo að ég fíli það alls ekki að vera í svona ótrúlega miklum fjölda af fólki sem að sameinaðist í skemmuna út á bryggju þessa helgi, en þetta er alltaf gaman.  Páskaegginn flæddu líka inn um dyrnar á heimilinu mínu og ég og Hrefna orðnar vel pakksaddar á þeim þegar hún fór heim aftur. Páskaeggjaát er engan veginn heilbrigt!

Það er skuggalega stutt eftir af skólanum. Rétt um 12 venjulegir skóladagar og það gerir það að verkum að ég er farin að tossast alltof mikið.  Þó svo að ég eigi alls ekkert að gera það og reyni mitt besta til að klára önnina með sóma.  Ég held að mér takist það alveg svona, með því að rétt skríða í gegnum stærðfræði og íslensku.  Ekki það að ég sé neitt léleg í íslensku, mér gekk bara ekki nógu vel að skilja SnorraEdduna og var aðeins of löt við að lesa Fóstbræðrasögu.  Þeir sem að eiga eftir Íslensku 203 mæli ég með því að þið lærið af fullri athygli.  Svo er ég líka að tossast á einhverri blessaðri ritgerð í íslensku, en þetta reddast allt saman ;] 

Það er vægast sagt hægt að segja að ég hafi komið með rosalegt "come back" á þessari síðu hérna.  Vonandi að einhverjir kommenti ef að einhverjir kíkja ennþá inná þessa síðu sem að er dauð úr öllum æðum. Kannski eitthvað sé hægt að bæta fyrir það ?

takk fyrir mig í dag allavega.
kv. Jónína Rut


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 16:50:14 / gurka

nýjar myndir



Hæ :0 Er búin að setja inn nýjar myndir í aðalval fyrir þá sem þær vilja nálgast.
... en ég nenni samt ekki að blogga.
Síðustu vikur hafa verið fínar og þær næstu verða enn betri.
Takk fyrir allt saman ;*
Jónína Rut.


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 13:27:41 / gurka

:)

 now playing ;;  slide - goo goo dolls.
ClothesClothes

\"Clothes\" \"Clothes\"

halló :]
það er kominn fimmtudagur fyrir þá sem að ekki vita.  það finnst mér mjög svo skemmtilegt, fimmtudagar eru uppáhalds dagarnir mínir í skólanum vegna þess að þá er ekki stærðfræði í stundatöflunni minni. Það gleður mig.  Á morgun er svo föstudagur, eins og allir heilvita menn ættu að vita vegna þess að föstudagur er yfirleitt á eftir fimmtudegi.  En já, á þessum föstudegi er Árshátíð Menntaskólans á Ísafirði haldin.  Ég fer nú reyndar ekki á matinn því að ég er að vinna og ég bara einfaldlega tími því ekki, en svo er ball heima á Flateyri á eftir með hljómsveitinni Buff. Það verður vonandi ekkert smá gaman :]

ég hlakka til sumarsins.

ég hef alltaf jafn mikið af skemmtilegum hlutum og sögum til að deila með ykkur. það er einfaldlega vegna þess að það gengur bara allt í þessari ákveðnu rútínu sem að ég hef myndað mér þessar vikurnar og það er bara fínt.
auður er að fara til reykjavíkur á mánudaginn og fer svo út til kanaríeyjar í næstu viku og ég verð hérna á flateyri án hennar í tvær vikur. Ætli það reddist ekki bara, ég er búin að lofa henni að ég ætli að verða dugleg að læra á meðan að hún er í burtu.  þetta á eftir að vera gaman hjá henni.

mig langar að tala smá um spice girls.  þessi gamla grúppa er einfaldlega bara goðsögn.  það er svo gaman að rifja upp eitthvað svona gamalt og gott.  eins og þetta, þegar maður var ungur og dýrkaði spice girls.  þa gekk maður óspart í rauðum peysum merktar þeim og hlustaði á "spice up your life" við hvert tækifæri. Þá var maður svalur. þetta voru án efa góðir tímar, svo komu líka fullt af öðrum tímabilum.  tímabilið sem að ég fílaði backstreet boys og boyzone í tætlur, tímabilið sem að ég taldi mig fíla rokk og svona mætti lengi telja.  alltaf gaman að minnast svona hluta en spice girls gellurnar kæta mig.

\"\"

en annars ætla ég ekkert að hafa þetta neitt mikið lengra í dag.  hér er eitt lítið blogg komið, takk fyrir pent.  þangað til næst ; hafiði það gott.  takk fyrir í dag.

jónína rut :]

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 09:55:01 / gurka

.

Góðan daginn.

ég ætla nú ekkert að blogga neitt mikið, var bara komin með leið á svarta þunglyndislitnum á síðunni minni og gamla blogginu mínu. 
..og mér drulluleiðist líka, þannig að um að gera.

 

Þar sem að ég er í eyðu í næsta tíma held ég líka ætla ég að uppfæra eitthavð og henda út drasli sem að er algjörlega tilgangslaust að hafa hérna.

Vonandi nenni ég því, þannig að endilega tjékkið á því.

Ætla að dunda mér við það, leitörs! 8)


jónína rut.
xX

 

 




» 10 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 11:12:57 / gurka

það er gott að sleikja olnboga!

now playing ;; snow (hey oh) – Red Hot Chili Peppers.
Cute

góðan daginn.

já, halló. mín bara bloggandi strax aftur. einfaldlega vegna þess að mér leiðist svo geðveikt mikið.  er búin að skoða allt sem að ég hugsanlega gæti skoðað á netinu og þegar ég vissi ekkert hvað ég ætti lengur að gera til þess að eyða tímanum mínum ákvað ég að henda inn einu slöku bloggi.
Annars hafa dagarnir verið eins óspennandi og þeir gerast best, skóli, vinna og svona bara það sama og alla hina dagana. En það er að koma helgi, og þó svo að ég hafi ekkert spes planað fyrir helgina þá er samt skemmtilegri tilhugsun að fá að sofa út í staðinn fyrir að berjast við svefninn í tímum. Alveg með eindæmum, alla þessa viku hef ég átt mjög erfitt með að halda mér vakandi í tímum þar sem að kennararnir eru með endalausa fyrirlestra uppá skjávarpa og maður þarf bara að hlusta og þá gleymir maður sér stundum og lokar óvart augunum og þá getur ýmislegt gerst :]

jújú, annars bara voðalega lítiða annað að frétta. litla systir mín er í blóma gelgjuskeiðsins núna og það er alveg frábært. hahah, gaman að sjá hana og rifja upp hvernig ég var fyrir 2 árum. GUÐ! en hún er ágæt greyið ;] laufey dröfn, ég er að minnast á þig hérna sæta mín ;* ... ekkert illa meint neitt.
Ég og Auður vorum að hlusta á gamla tónlist í gærkveldi og það var ótrúlega fyndið. Tókum andköf í hvert skipti sem að eitthvað af "lögunum okkar" kom. Þegar ég segi lögunum okkar meina ég þeim lögum sem að við bókstaflega nauðguðum hérna í gamla daga.  Gaman að rifja upp þá góðu, gömlu tíma og hvað allt hefur breyst síðan þá. Elska þig Auður mín <3

blog image

ég ætti eiginlega að vera að læra núna í staðinn fyrir að vera að þessu, ég bara nenni því einfaldlega ekki. Ælti hluti af helginni minni fari þá ekki bara í það að klára heimalærdóminn sem er óvenju mikill þessa helgina. Össs. En það þýðir ekkert að röfla yfir því, finish what you start!
Hrefna Hrund, páskarnir nálgast óðum! Get ekki beðið eftir að fá þig í heimsókn, sakna þín svo mikið. Það er líka alltaf gaman á páskunum fyrir vestan, þetta verður sumsé ágætt ;]
Er að pæla í að hafa þetta ekkert neitt mikið lengra en þetta í bili, komið gott bara. Samt langt síðan að ég hef nennt að setjast niður og blogga. Kominn tími til.  Vona að helgin ykkar verði fín, hvað sem þið gerið :*
takk fyrir


söknum þín hrefna hrund.  <3   elska ykkur.


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 02:32:27 / gurka

ó halló

Now playing ; apologize – one republic

 

Góðan daginn og gleðilegt nýtt ár.

Fyrsta blogg mitt á þessu ári og ég veit ekkert hvað ég á að segja .. Bara allt gott að frétta af mér, skólinn og vinnan byrjuð aftur á fullu og venjulegt líf tekið við. Ég er nú bara aðallega að blogga fyrir hana Júlíu bara svona svo að hún hætti að röfla næstu tvær vikurnar eða svo ;] hahaha. Þú veist að ég er bara að djóka dickhead, þú ert ágæt ;* hahah
En já annars hefur ekkert spes átt sér stað .. Áramótin voru fín. Dögunum fyrir og eftir gamlárskvöld eyddi ég með vinum mínum en ég var á Ísafirði með pabba og hans fjölskyldu um gamlárskvöldið. Það var bara fínt og frekar rólegt, var farin að sofa fyrir 2 og hafði það bara gott.  Alltaf gaman að því ;]   Og ég elska jólafrí svo mikið, þegar maður getur bara sofið út alla daga og haft það rólegt. Það er yndislegt.  Jólafrí er án efa uppáhalds fríið mitt því að á sumrin fer maður beint að vinna, þannig að það er ekkert "frí".

Í dag var ég bara að vinna og eitthvað fór svo að rúnta með jovan, yan og auði.. Alltaf gaman af því. Enda fínn félagsskapur þar á ferð.  En já, þetta blogg sökkar svo innilega! þess vegna ætla ég bara að enda það hér og nú .. Henti inn nokkrum myndum síðan um jól og áramót ef að einhver hefur áhuga. Takk fyrir mig :]

jónína rut
xX

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 16:55:20 / gurka

__

now playing ;; all i want for christmas is you - mariah carey

Jólablogg ,,

Jájá, góðan daginn.
Ég hef alls ekki veirð að standa mig í blogginu undanfarið enda hefur mikið gengið á að sökum þess að jólaundirbúningurinn er í hámarki, helling að gera í vinnunni, ég var veik og bara allt að gerast síðustu tvær vikur fyrir jól.  

Jólin nálgast óðum og ég er í óðaönn að vinna mér inn dulítinn pening með 10-13 klukkutíma vinnudögum og litlum svefni og því síður miklu félagslífi en allt á þetta eftir að borga sig þegar ég fæ fallegan launaseðil í næstu viku og um mánaðarmótin. 

Árið 2006 fer fljótlega að verða búið, það er að segja einhvern tímann í næstu viku.  Áramótin í sjálfu sér vekja meiri tilhlökkun en sjálf jólin þetta árið.  Ætli það sé ekki vegna þess að ég hef elst dulítið frá því að það var spennandi að fá Barbie dúkkur og náttföt í jólagjöf.  Þó svo að jólin verði alltaf frábær tími og tilhlökkunarefni að einhverju leyti hlakka ég mest til að eyða þeim í faðmi fjölskylu og vinar og sofa út og hafa það rólegt.  Þess vegna vona ég að allir njóti jólanna sem best og óska ykkur allra gleðilegra jóla. 

Árið 2006 ku hafa verið frekar byltingarkennt.  Margt skrítið hefur átt sér stað og helling af breytingum.  Það var samt ekkert uppistandandi skemmtilegt sem að átti sér stað á árinu þannig að í heildina litið var árið 2006 bara ágæt alveg hreint. 

        - Ég kláraði grunnskólann.  
- Frystihúsið var minn griðarstaður í eiginlega allt sumar.
- Ég fór í nokkrar slakar útilegur.
- Ég hef saknað Hrefnu Hrund óvenju mikið þetta árið.
- Ég byrjaði í menntaskóla.
- Ég fór í skemmtilegt skólaferðalag.
- Pabbi minn flutti vestur.
- Ég eignaðist fullt af nýjum vinum.
- Margrét Alda flutti til Akraness. Sakna hennar ;*
- Það bættist fjölskyldumeðlimur í hjónaband mitt og Auðar.  I share. Og er ótrúlega ánægð fyrir Auðar hönd ;*
- Ég lærði að downloada tónlist af internetinu.
- Ég upplifði hræðsluna við að falla í STÆ103.
- Ég fékk að upplifa skemmtilega og eilífa stressið fyrir samræmdu prófin.
- Ég fékk vinnu í sjoppunni.
- Ég fékk æfingarakstursleyfi.
- Ég eyddi helling af pening sem að ég hefði frekar átt að spara.
- Ég hef líka lært að vinir koma og fara, þó svo að ég muni aldrei gleyma vinum mínum og þeir verði alltaf vinir mínir. Vona að þeir viti það ;*
- Ég litaði hárið á mér dökkt.
... og ég gerði helling af öðrum hlutum.

 

Ég vil bara þakka öllum sem að komu nálægt því að gera 2006 árið bærilegt og skemmtilegt vel fyrir það. 

 

Ég er komin í jólaskap.  Búin að taka vel til í herberginu mínu þá daga sem að ég hef tíma milli þess sem ég er vinnandi eða sofandi og er byrjuð að spila svolítið af jólalögum til þess að finna andann. Það er ekki langt í mandarínur og jólaöl hjá mér þessa dagana og þetta er allt að koma .. Þó fyrr hefði verið, það eru nokkrir dagar í jólin.  Ég hlakka líka til áramótanna og ég vona að ég geti haft eitthvað gaman af þeim með vinum og fjölskyldu, ég efast ekki um það. Margrét Alda er komin og það var ekkert smá gaman að fá hana. 
Jónína er að komast í jólaskapið !   

Jæja, ég hef bara voðalega lítið annað að segja.  Ætla bara að halda áfram að þrifa og vinna og bið bara að heilsa ykkur.   Hafiði það gott um hátíðarnar ;*

  Gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
T
akk fyrir allt gamalt og gott.

Jónína Rut.


» 13 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 21:19:25 / gurka

jóóóðl !

now playing  ;;  promise me – mc spanish fly

4am here we go again 4am here we gooooo !

Góða kveldið.
ég verð að viðurkenna það að ég er svo algjörlega hugmyndalaus að ég veit ekki afhverju ég fór inní vefstjorn með það í huga að blogga. 
Ég er enn ekki komin í jólaskapið en vona að fari að gera vart við sig svona fljótlega helst. Ég á eitt próf eftir á þriðjudaginn næstkomandi og þá er ég loksins komin í jólafrí frá skólanum. Þegar því markmiði hefur verið náð ætla ég að reyna að fá vinnu í frystihúsinu frá 7-3 og vinna svo í sjoppunni líka :]  Gott plan, gott plan ! Reyna að græða smá á þessum jóladögum, um að gera ..
 
 

Já, eins og glöggir lesendur gætu hafa tekið eftir breytti ég litnum á síðunni minni til þess að reyna að fríska aðeins upp á þetta og hafa þetta smá aðlaðandi.
Það er laugardagskvöld og ég hef ekkert að gera.. Ég er of löt til að labba til Auðar því að það er skítaveður. Kannski maður kíkji bara í bækur og læri fyrir próf ? Gæti verið nokkuð sterkur leikur. Ég ætlaði að fara til Ísó og gista og læra með Elínu en vegna veðurs fór ég ekki.  Þannig að maður verður að reyna að læra bara eitthvað sjálfur, er það ekki ?

Pabbi minn fluttur til Ísafjarðar. Það er bara nokkuð gott að vera búin að fá kallinn aftur til sín og með fjölskylduna sína. Gaman að geta umgengist þau meira .. Líka ekki slæmt að hafa aðstöðu á Ísafirði.
Ég er að pæla í að vera bara köld og láta þetta duga .. Blogga einhvern tímann fyrir jól líklegast. Vonandi að ég verði komin í jólafíling þá. Where are you christmas ?

jæja takk fyrir í dag,,
jónína rut.  xX

ClothesPunkClothes


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 01:37:49 / gurka

'o_0'

now playing ; light my candle - rent.

 

Góðan daginn, góðan daginn !

Já, bara fallegur dagur í dag eins og bara alla hina dagana.

Ótrúlegt hvað þessir dagar eru farnir að líða óvenju hratt. Mér finnst alltaf vera mánudagur og föstuagur. Ekki það að það sé neitt slæmt, ekki kvarta ég.

Það styttist óðum í jólastressið og æðið sem fylgir því.  Ég er satt best að segja ekkert neitt alltof spennt fyrir því, ég hlakka eiginlega meira bara til áramótanna.  Og mest hlakka ég þó til þess að komast í jólafrí. Þó svo að ætlunin er sú að vinna í jólafríinu en það verður bara ef að einhverja vinnu er að fá. Jújú sjáiði nú til að svo skemmtilega vill til að bærinn minn er uppfullur af nýjum Pólverjum, sem er ekkert nema hið besta mál þar sem að ég er ekki þekkt fyrir að vera rasisti.. En af sökum þess að þeir séu allir fluttir hingað er enga vinnu fyrir mig að fá í frystihúsinu. Ætli ég verði ekki bara að bíta i það súra epli og una mér við þá tilhugsun að vera fátækur námsmaður .. Hvað er betra en það ?  Ó, svo sárafátt ! Haha

  Jæja jæja. Margt hefur átt sér stað síðan að ég bloggaði síðast. Búið að vera ótrúlega mikið að gera í skólanum og svo vinnan í Essó og bara allt á fullu. Ég & Auður fórum í litun á miðvikudaginn, það var nice. Og í dag eru bara 3 dagar eftir af venjulegum skóladögum svo koma bara prófin og svo er það bara jólafrí sem að verður yndislegt.  Ég get bara eiginlega ekki beðið.  Vona bara að ég nái öllum áföngunum mínum, er ekkert of viss með stærðfræðina .. En það kemur bara allt í ljós og ég geri mitt besta að sjálfsögðu.    

Hmm. Var að koma af féló og það var bara helvíti nice. Horfðum á myndina þarna.. The Grudge. Hún var ekkert það scary, allavega ekki jafn scary og ég hélt hún yrði.  Linda .. Hún var fokkin æði á féló ! Nuddaði á mér bakið geðveikt lengi og það var geðveikt gott! Elska þig Linda, takk kærlega ;* Annars var þetta bara geðveikt kósý kvöld og ég var alltaf næstum því sofnuð.

 

Heyrðu jújú, skóhorn! Ég var víst búin að lofa Jovan að ég myndi minnast á það í næsta bloggi mínu. Skóhorn eru svoldið sniðug uppfinning. Mér finnst hún kúl ! Það er bara svo auðvelt og þægilegt eitthvað .. Ég elska að geta farið fram á gang og þurfa svo að klæða mig í skónna og þá get ég bara notað skóhorn :]
Okay, ég ætla ekki að skrifa meira um skóhorn því að það væri bara sorglegt. Mér finnst þetta allavega ekki bara fyrir gamalt fólk og letingja, þetta er bara spurning um þægindi almennt. 

en já, ætla ekkert að hafa þetta neitt mikið lengra.
takk fyrir mig í dag ;*

jónína rut.


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 16:54:22 / gurka

___

now playing ; how to safe a life - the fray.*
hehe.jpg

Góðan daginn !

Það er miðvikudagur í dag og ég fíla það !
Í dag er ég glöð án þess að hafa neina sérstaka ástæðu til þess .. 
Í dag þarf ég samt að læra fyrir hlutapróf í dönsku.
Í dag var ekki stærðfræðitími.

Djöfull. Ég nenni þessu ekki. Vildi bara láta vita af því að ég er lifandi, upptekin en lifandi. Gaman að þessu blessaða lífi jújú.

Takk fyirr mig
jónína..


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 11:26:24 / gurka

3.nóvember

 
Bloggið í dag verður ekkert stórvægilegt. Ég vildi bara blogga í tilefni þess að það er 3. nóvember og tvær stúlkur eiga afmæli í dag.

Hrefna Sæta!! :*
Elsku Hrefna mín, til hamingju með afmælið.  Hrefna er 15 ára í dag og ég vona að afmælið þitt verði skemmtilegt :) Love you baby ! ;)<3


Júlía ! :*
Elsku Júlía mín, hún á líka afmæli í dag. 21 árs gömul þessi sæta stúlka ;) Til hamingju með afmælið beip :* Vona að dagurinn/helgin verði frábær ;) looove <3

____________________________

Annars ætla ég ekkert að hafa þetta neitt mikið lengra í dag. Í kveld er skrallið á Flateyri, það verður geðveikt gaman :) Ég hlakka ekkkert smá til. Arna og Elín ætla að koma til mín og við ætlum að hafa gaman og skella okkur svo á ball. Wohoo! En hey, er að fara á fyrirlestur. Takk fyrir mig

<3

-jónína.


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 22:12:35 / gurka

...

 

marjsm13
Now Playing ;; call and return – hellogoodbye. **

 

Góða kveldið.

Jæja, helgin búin. Helgin sem ég beið eftir. Helgin sem ég taldi niður í. Helgin sem að Hrefna kom. Helgin var geðveik, ég ætla bara að þakka öllum þeim sem komu eitthvað nálægt henni kærlega fyrir;* Auður & Hrefna, takk! =) ..Og ísfirsku gellurnar að sjálfsögðu líka.

Fimmtudagur : Hrefna kom =) Ég, Hrefna & Auður vorum hjá Auði að setja á okkur maska og brúnkukrem og hafa gaman. Slúðra – það er möst. Og bara fullt af skemmtilegu stuffi. Svo fórum ég og Hrefna heim að spjalla og fórum svo að sofa því að eg þurfti að mæta í skóla daginn eftir.

Föstudagur: Dagurinn sem ég hafði beðið eftir í langan tíma. Skólinn leið óvenju fljótt og ég var allt í einu komin heim til Flateyrar. Við allar þrjár ákváðum að fara í sund og fórum að tjilla og svo komum við heim að þurrka, slétta og krulla hár. Mála okkur og gera okkur tilbúnar fyrir Ísafjörð. Við fórum og fengum okkur að borða í Thai Koon – það beilar aldrei. Svo fórum við í bíó með Matthildi, Albertu, Nínu, Ólafíu, Elínu, Telmu og Mörtu á myndina Step up! Vááá hvað hún var geðveik !! Svo um 11 leytið fórum við í eitthvað partý og það var bara geðveikt fínt ;]

Laugardagur: Vaknaði þreytt og fór að vinna. Svo þegar ég var búin að vinna fórum við stelpurnar í sund og gufu og fórum svo bara heim og ég man ekkert hvað við gerðum. Um kveldið fórum við svo á rúntinn til Ísafjarðar. Við vorum komin alveg upp að göngum þar sem að bílinn hans Magga drap á sér. Þarna vorum við í niðamyrkri, skítkalt úti, ekkert samband og enginn bíll á leiðinni - föst/bíllinn dauður & þetta var frekar skondið. Í fyrstu fannst okkur þetta frekar spennandi og fyndið en svo þegar líða tók á kveldið var þetta orðið frekar kalt og leiðinlegt. En við redduðum þessu, Auður og Hrefna fóru  með löggunni til Ísafjarðar að kaupa olíu á bílinn og Jovan og Hrefna redduðu okkur líka. Þetta var frekar skrautlegt. Svo komst þetta í lag og við fórum yfir á Ísó og fengum okkur þeyting og stuff. Svo þegar við vorum á leiðinni til baka held ég að bíllinn hans Magga hafi endanlega gefist upp! Hahah. Þegar við komum heim þá fórum við stelurnar heim til Auðar og horfðum á video en ég var svo þreytt að ég sofnaði fljótlega.

Sunnudagur var chill! Ég fór að vinna til 3 og stelpurnar voru með mér og við vorum að læra og svo vorum við bara letingjar það sem eftir var dagsins. Fórum svo á Ísafjörð með Ingva, það var nice. Og komum svo heim og horfðum á einhverja fáránlega mynd.. Haha

 

 



Hahahaha!!
Takk fyrir helgina stelpur :* Elska ykkur geðveikt mikið!! Setti inn nokkrar myndir af okkur btw ;] Myndavélin mín beilaði þannig að það tókust ekki myndirnar sem að ég tók:/
Jáá! Svo er skrallið á næstu helgi, það verður geðveikt gaman.
Ég ætla ekkert að hafa þetta lengra í dag. Vil bara þakka fyrir mig og ég blogga næst þegar tækifærið gefst.

jónína ;;


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 22:45:31 / gurka

-_-

PunkPunkPunk
now playing ; fm957

Góða kveldið.

Váá, það er tímabært að ég bloggi. Ég daðraði mikið við þá tilhugsun að hætta bara endanlega að blogga þar sem að ég var engann veginn að nenna þessu lengur en ég ætla að reyna að gefa mér tíma og blogga dulítinn slurk :] Það hefur náttúrulega sitthvað bjátað á síðan að ég bloggaði síðast - eins og vera ber. Ég ætti satt best að segja að vera að læra núna, en ég nenni því svo engan veginn. Er búin að læra helling í stærðfræði í dag og ég held að kvótinn sé bara góður. Sit bara hérna uppí rúmi, með msn still á "away" þannig að enginn talar við mig .. Hlusta á kósý tónlist og hef það gott. Hætt að hafa áhyggjur af stærðfræðiprófinu sem ég fer í á mánudaginn næstkomandi - allavega hætt því timabundið.. Ekki það að heimurinn fari eitthvað ef að mér gengur ekkert alltof vel á því, ég er bara staðráðin í því að gera mitt besta. Fullt að gera í vinnunni líka þessa dagana þannig að ég sé voðalega sjaldan framan í vini mína. Nema að sjálfsögðu þá sem ég er með í skóla, það pakk umgengst maður á hverjum degi ;] Hoho.. Það er fínt samt. Ég og Auður gefum okkur samt stundum tíma til að fara saman í íþróttahúsið eða hanga heima hjá henni að horfa á Dawson's Creek, sem er best ;**

Váá hvað ég var næstum því búin að gleyma hvað þetta eru bestu þættir í heimi. Ótrúlega gaman að liggja bara og horfa á þessa gömlu þætti og rifja upp þegar ég var svona 12 ára gelgja að þykjast skilja og dýrka þessa þætti :´) Gaman af því.. Haha.
Það er svo kalt úti. Þetta ætti að vera ólöglegt! Guð minn góður! Það er ógeð að fara út og deyja! Ótrúlega skrítið, við höfum ekki farið út að labba í MARGA daga hérna heima á Flateyri. Í fyrra þótti það ekkert nema sjálfsagt að fara út að labba en núna er það ekki einu sinni inní myndinni. Ekki séns að ég nenni að fara út bara til þess að labba í hringi.. Þó svo að ég sakni félagsskapsins. En, alltaf hægt að gera eitthvað annað saman ef fólk er til í það;]

Guð, ég nenni þessu ekki lengur. Ætla að fara að tala við einhvern á msn eða eitthvað. Hrefna kemur vestur á fimmtudaginn ! =D=D=D Það verður GEÐVEIKT! Ég & Auður erum búnar að skipuleggja öll kvöld og þetta verður bara geðveikt. Hrefna, hlakka til að fá þig :*


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14